Spurningin um höfund Grettis sögu


Elín Bára Magnúsdóttir Elín Bára Magnúsdóttir
Bok Islandsk 2022 Elín Bára Magnúsdóttir

Omfang
201 sider : illustrasjoner
Opplysninger
Spurningin um höfund Grettis sögu Ásmundarsonar hefur lengi verið til umræðu í íslenskum fræðum. Árið 1938 setti Sigurður Nordal fram þá kenningu að líklega væri Sturla Þórðarson (1214-1284) höfundur fyrstu gerðar sögunnar. Nýlegar höfundarannsóknir á Eyrbyggja sögu og Þorskfirðinga sögu styðja kenningu Nordals, en það hefur gefið tilefni til að vinna áfram með höfundarspurningu Grettis sögu með það að markmiði að varpa nánara ljósi á hugsanlegan höfundaskap Sturlu á sögunni. Í þessari rannsókn er bæði stílfræðilegum og bókmenntafræðilegum aðferðum beitt með aðstoð nútímatölvutækni. Niðurstöður hennar benda til að Grettis saga sé upphaflega höfundarverk Sturlu og að sagan hafi varðveist í heilu lagi frá upprunalegri gerð hans. Aðrar rannsóknir sýna einning að ákveðnir hlutar orðaforðans séu ekki frá Sturlu komnir heldur megi rekja þá til skrifara sem breyta texta sögunnar við endurritun handrita. Varðveisla sögunar styður þetta og bendir til að upprunalegum texta Grettis sögu hafi síðast verið breytt í elstu handritum hennar sem eru frá lokum 15. aldar.
Emner
Dewey
ISBN
9789935232984

Andre utgaver/formater

Spurningin um höfund Grettis sögu
Elín Bára Magnúsdóttir
Elín Bára Magnúsdóttir

Bok · Islandsk · 2022

Bibliotek som har denne